Eitthvað rugl á sjónvarpsmerkinu og því engin CL útsending hjá mér. Á svona stundum bjarga netið og lappinn því sem bjargað verður. Ekki gott en betra en ekkert.
Hekla fékk pakka frá Erlu ömmu sinni í gær. Í pakkanum var svona líka svaka flott lopapeysa og húfa sem amma hennar hafði prjóna, og nú getur mín bara ekki beðið eftir að komast í réttir.